Ærslubelgur

Ærslubelgur

Hvað viltu láta gera? Setja ærslubelg Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna þess að það er skemmtilegt að hoppa og allir geta hoppað saman. Eflir hreifingu og samveru vina og fjölskyldna.

Points

Algerlega sammála, ætlaði að setja þessa hugmynd inn sjálf :) Þetta væri frábær hvatning fyrir krakkana í hverfinu til að hreyfa sig og ærslast.

Algjörlega sammála að fá ærslabelg nálægt Árbæjarskóla. Sendi inn þessa hugmynd seinast en þá var ekki nógu mikið fjármagn, svo að núna ætti þetta að ganga vonandi 😊

Mjög flott hugmynd

Frábær hugmynd, við fjölskyldan ferðuðumst talsvert um landið í sumar og tókum eftir því að það eru ærslabelgir í "nánast" í hverju einasta smáþorpi landsins þannig að það er eiginlega með ólíkindum að þeir skuli ekki vera komnir í fleiri hverfi borgarinnar. Ærslabelg ekki seinna en strax!

Setja ærslabelg nálægt eða við Selásskóla. Vantar afþreyingu í hverfið nálægt skólanum.

Væri flott að fá einn í Ártunsholtið t.d hjá Aparóló eða við Árbæjarsafn

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur, Til hamingju hugmyndin þín hlaut kosningu í Hverfið mitt 2021. Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022, niðurstöður kosninga má sjá á www.Hverfidmitt.is. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is/. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information