Sundlaug í Fossvogsdal

Sundlaug í Fossvogsdal

Hvað viltu láta gera? Byggja sundlaug við íþróttasvæðið í Fossvogsdal Hvers vegna viltu láta gera það? Það vantar sundlaug í hverfið

Points

Löngu tímabær framkvæmd sem hefur verið í umræðunni í amk 30 ár en ekkert gerst. Fossvogsdalurinn eitt af mest notuðu útivistarsvæðum borgarinnar sem fyrir miklu fleiri en íbúa hverfanna í kring. Besti staðurinn væri þar sem Skógræktin Reykjavíkurborgar er nú staðsett eða þar í kring. Hægt að keyra þá með hugsanlega einhverjum takmörkunum niður Fossvogsveginn

Sundlaug í dalinn væri tilvalin. Aðeins með aðgangi fyrir labbandi og hljólandi

Vissulega væri gott að hafa sundlaug en ég vil ekki sjá aukna bílaumferð um götur hverfisins. Það er nóg samt. Umhverfisvæn sundlaug án bílastæða er algjörlega óraunhæf.

Huggulegt að geta gengið til sundlaugar fyrir Fossvogsbúa.

Það vantar sárlega sundlaug í hverfið.

Fossvogsdalurinn er sennilega veðursælasti reitur á öllu landinu og fullkomnlega vannýttur. Sundulaug mundi draga borgara inná svæðið og gæti verið skref í átt landsnáms í dalnum. Gott væri að sundlaugin skapaði sér sérstöðu með að vera ekki í anda kappleikja heldur meira í anda útiveru. Minna beinar brautir, hvítar flísar og steinsteypt plön og meira viður, steinhleðslur og sandur.

Styð eindregið þessa hugmynd og vona að framkvæmdin verði sem fyrst. Skilst að sundlaug á svæðinu sé inni í skipulagi en stopp af einhverjum ástæðum.

Að hafa sundlaug í hverju hverfi er fjölskylduvænt og umhverfisvænna. Löngu tímabært

Upplagt að staðsetja sundlaug þar sem ræktunarstöð Reykjavíkur er núna og nýta þá væntanlega strætó-/borgarlínustopp sem á að koma þar.

Næstu sundlaugarnar eru Árbæjar, Breiðholts, Kópavogs og Laugardals sem er alveg spöl að taka og sérstaklega ef Reykjavík vill bera græn borg þá er langt að fara í sund nema að eiga bíl, Fossvogurinn er erfiður að vera bíllaus því það er svo langt í allar þjónustur. Vantar almenn verslun eins og Bónus eða Krónan, Grímsbær er eina sem er í boði eins og er. Það væri líka flott að hafa kaffihús. Þá þyrfti fólk sem byggi þarna ekki að fara í Kópavog eða Breiðholt í allar þjónustur.

Sundlaug í Fossvogsdal myndi sóma sér vel og þjóna stóru íbúasvæði, Reykjavíkur- og Kópavogsmegin. Eins og bent er á hér væri tækifæri til að reisa húsnæði fyrir kaffihús við sundlaugina sem væri stórkostlegt!

Það vantar aðra 50 m sundlaug og Fossvogurinn væri staðurinn. Og svo væri tilvalið að hafa þarna einnig Jógasetur og geggjað Spa.

Það vantar sundlaug í hverfið og aðra 50 metra laug . Svo væri tilvalið að hafa þarna einnig Jógasetur og geggjað Spa.

Sundlaug í Fossvog er umhverfisvæn fyrir alla Rvk. Minna um óþarfa keyrslur í aðrar sundlaugar. Einnig eru margir sem veigra sér frá því að flytja með fjölskyldur í Fossvog vegna skorts á sundlaug í hverfinu.

Og mikið væri næs ef sundlauginni fylgdi huggulegt kaffihús.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins og fellur ekki að reglum verkefnisins þar sem hún krefst verulegs rekstrarkostnaðar. Sundlaug í Fossvogsdal er einnig í ferli annars staðar í borgarkerfinu. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information