Dorgbryggja á Laugarnestanga

Dorgbryggja á Laugarnestanga

Hvað viltu láta gera? Setja upp dorgbryggju á Laugarnestanga, td. við uppfyllinguna sem er að koma við Klettagarða. Þarf ekki að kosta mikið, ekki eins og var í einni útfærslunni þá var kostnaðurinn kominn upp í 17 milljónir. Ég veit ekki hvort það hafi verið með upphituðu bílastæði og sjoppu en ég var bara að spá í flotbryggju stubb. Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna þess að það eru margir sem hafa gaman að því að veiða og það ætti að vera óhætt þarna. Eins og er þá fara margir út á tangann við hálfvitann, við Skarafagarða til þess að veiða. Þarna væri hægt að setja upp bryggju sem væri ekki fyrir annari starfsemi og gæti fengið að vera í friði.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem ströndin á Laugarnestanga er náttúruleg strönd sem er á náttúruminjaskrá ásamt því að mikið er um fornminjar sem má ekki raska. Hluti af svæði er síðan í eigu Faxaflóahafna og fer þessi hugmynd áfram sem ábending til þeirra. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information