Umferðarspeglar

Umferðarspeglar

Hvað viltu láta gera? Setja upp umferðarspegla við gatnamót Sogavegur/Háagerði og Sogavegur/Breiðagerði. Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta eru orðin hættuleg gatnamót vegna þess að bílum er lagt svo nálægt þeim og birgja þar af leiðandi sýn ökumanna til austurs og vesturs þannig að ekki er hægt að sjá umferð sem kemur fyrr en of seint og þá er voðinn vís.

Points

Einnig er mikið um börn á þessum leiðum. Vegna lítils útsýnis hefur marg sinnis legið við slysum við þessi gatnamót.

Mjög hættuleg gatnamót og mikil nauðsyn á að bæta öryggi þarna

Tek undir þetta og reyndar er líka þörf á speglum eða öðrum úrbótum víða a Sogaveginum þar sem er mikið af botnlöngum og mjög skert utsyni fyrir ökumenn. Það eru mjög oft krakkar a hjólum eða hlaupahjólum a mikilli ferð sem fara þá í veg fyrir bíla sem eru að koma úr botnlöngunum og sjá vegfarendur seint og illa. Hefur marg oft munað litlu að illa fari.

Stórhættuleg gatnamót, maður er komin í veg fyrir umferð áður en maður sér niður götuna. Sérstaklega á veturna þegar snjór skyggir enn meira á

Mjög hættuleg gatnamót

Tek undir þörfina á speglum á þessum gatnamótum! Mjög erfitt að sjá hvort það séu bílar að koma.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information