Árbæjarlaug

Árbæjarlaug

Hvað viltu láta gera? Það vantar betri pott fyrir yngri börn, eins og potturinn sem er á Akureyri lauginni þar. Þar eru tveir pottar samtengdir, annar er skel sem hægt er að liggja í og yngstu geta sitið í, hinn potturinn er með leikgrind með rennibraut fyrir börn. Þessi pottur er nógu djúpur til að foreldrar geta sitið í á meðan börnin leika sér. Allur potturinn er með mjúku undirlagi. Ef það er nægur peningur þá mætti líka setja nýjar rennibrautir eins og á Akureyri. (Sjá mynd í viðhengi) Hvers vegna viltu láta gera það? Það vantar svona pott í Árbæjarlaug, sem er nógu hlýr til að hægt sé að sitja í honum en ekki of heitur svo börnin geti ekki verið í honum. Ef það væri hægt að laga alla Árbæjarlaug þá myndi ég stinga upp á því þar sem hún er orðin of gömul og margt sem þarf að bæta. Þetta myndi allavega hjálpa barnafjölskyldum og auka bæði þægindi og skemmtanagildi fyrir þær fjölskyldur.

Points

Mjög þörf viðbót! Gríðarlega mikið af barnafólki í hverfinu.

Komin tími á að geta tekið barnið með í hverfislaugina, þarf alltaf að fara í Mosfellsbæ svo barnið getur haft gaman af sundferð. Sundlauginn á Akureyri er sú langbesta, synd að það sé enginn lík henni í Reykjavík.

Frábær hugmynd. Er að sækja þessa aðstöðu í dag í öðru bæjarfélagi

Svo sammála, þyrfti að lappa uppá laugina, gera hana skemmtilegri börnum ( við förum yfirleitt í Lágafellslaug útaf krökkunum) og infrarauðu saununni. Bætti setja infrarauða saunu.

Sammála. Vantar grunna vaðlaug með leiktækjum/leiksvæði fyrir yngstu börnin.

það mætti loka á milli vaðlaugar og sundlaugar - kuldinn á vatninu sem þarf að vera í sundlauginni skemmir vaðlaugina sem væri annars fín. En sammála öllu öðru

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur, Til hamingju hugmyndin þín hlaut kosningu í Hverfið mitt 2021. Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022, niðurstöður kosninga má sjá á www.Hverfidmitt.is. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is/. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information