Beygjuljós á gatnamótum Háaleitisbrautar og Kringlumýrabraut

Beygjuljós á gatnamótum Háaleitisbrautar og Kringlumýrabraut

Hvað viltu láta gera? Setja beygjuljós til að það myndist ekki eins hættulegar aðstæður og gerist núna á háannatímum þegar það er mikil umferð úr Lágmúla og einnig frá Skipholtinu. Að fara þarna um á háannatíma er óþægilegt fyrir gangandi og hjólandi umferð því fólk keyrir hratt og bílstjórar lenda í vandræðum á þessum beygjuljósum og eru að keyra yfir þegar það er komið rautt. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er alltaf verið að keyra á handriðið sem er búið að koma upp sem á að vernda gangandi vegfarendur sem eru að bíða eftir grænum kalli.

Points

Sammála, nauðsynlegt að bæta öryggi gangandi vegfarenda við þessi ljós

Það þarf að samstilla gönguljósin þarna,

Algjörlega sammála. Kom með þessa hugmynd í fyrra. Vonandi verður af þessu núna því þetta er algjört öryggisatriði fyrir gangandi og akandi vegfarendur.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information