Hvað viltu láta gera? Það verður að tengja Gerðin og Lönd með göngubrú yfir Bústaðaveginn á helst 2 stöðum. Hvers vegna viltu láta gera það? Þessi hverfi nýta Réttarholtsskóla sem sinn gagnfræðaskóla sem er ofan við Bústaðaveginn sem og er íþróttastarf fyrir þetta skipta hverfi í Víkinni niðri í Fossvogsdalnum neðan við Bústaðaveginn. Það verður að koma á öruggari tengingu innan hverfisins yfir Bústaðaveginn.
Göngubrýr eiga heima við hraðbrautir, sem Bústaðavegeur er ekki. Nær væri að lækka hámarkhraðann í 30 frá Stjörnugróf að Háaleitisbraut og fjölga öruggum þverunum, með upphækkunum og þrengingum (áfram tvær akreinar, en þrengja þær eins og er víða gert). Það er margsannað að göngubrýr auka ekki öryggi gangandi vegfarenda heldur þvert á móti veita ökumönnum þá tilfinningu að þeir eigi veginn þar sem engi hætta sé á gangandi (þeir eiga jú að nota brúnna) og aka þeir því hraðar.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 – 2021 þar sem skipulagsferill hugmyndarinnar er of langur fyrir verkefnið. Betri tengingar og breytingar á Bústaðavegi við Grímsbæ eru í skoðun annars staðar í borgarkerfinu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation