Sundlaug

Sundlaug

Hvað viltu láta gera? Það vantar sundlaug í Hlíðarnar. Hvers vegna viltu láta gera það? Sundlaugarnar við Barnónstíg og í Laugardal þjóna illa íbúum Hlíðasvæðis. Perlan hefur verið nefnd en ég legg til að skoða önnur svæði innan hverfisins, eins og þau sem hafa verið skilgreind fyrir þéttingu byggðar, t.d. Veðurstofutún sem gæti þar með líka þjónað Leitum.

Points

Það mætti þá kannski skoða að þessi baðaðstaða hefði einhverja sérstöðu? Til dæmis að einungis væru heitir pottar og gufuböð í grónu umhverfi, en enga sundlaug.

Góð hugmynd en mig minnir að borgin sé búin að eyrnamerkja þetta svæði í blokkir. Þess vegna er verið að færa mælitækin yfir og rústa litlu öskjuhlíð. Væri samt meira til í sundlaug ef það á að byggja eitthvað þarna.

Sundlaug/heita potta við íþróttahúsið við Háteigsveg

Það eru hverfi í Reykjavík sem hafa það miklu verra hvað varðar nálægð við sundlaug heldur en Hlíðahverfi.

Sundlaug á Veðurstofuhæð er miklu betri hugmynd en að eyðileggja ásýnd þetta fallega svæðis með drungalegum steinsteypukössum eins og var gert við svæðið í kringum Útvarpshúsið.

Líka hægt að hafa lögina á bakvið MH og nýta þannig bílastæðin þar á kvöldin og um helgar.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information