Laga göngustíg frá Réttarholtsvegi yfir í Háagerði 51-59

Laga göngustíg frá Réttarholtsvegi yfir í Háagerði 51-59

Hvað viltu láta gera? Hvað viltu láta gera? Laga stíg sem liggur frá gangbrautaljósum frá yfir Réttarholtsveg yfir í Háagerði 51-59. Mikil umferð barna er um þennan stíg, margir koma á hjólum eða fótgangandi. Þau nota ekki tröppurnar, heldur hefur troðist langur stígur í grasið. Hefði viljað að sá stígur yrði gerður þannig að það sé auðvelt fyrir þau að koma á hjólum/hlaupahjólum í skólann. Við skiljum vel að þetta sé notað, þar sem ekki er þægilegt að láta sig rúlla niður tröppur þegar maður er á hjóli ;-). Mikilvægt er að við lagfærum aðgengi þeirra sem eru á hjólum/hlaupahjólum og komum í veg fyrir slysahættu. Einnig er hægt að benda á að tröppurnar sem eru til staðar í við botn Háagerðis 51-59 eru orðnar skakkar og því hættulegar. Mun snyrtilegra er umhorfs í næstu lengju (Háagerði 61-69,sjá mynd) en þar eru tröppurnar beinar og að auki er búið að setja upp handrið. Við myndum vilja að götumyndin væri samræmd og sambærileg handrið sett við alla botnlangana og tröppurnar lagfærðar. Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta er ósnyrtilegt og subbulegt. Einnig býður þetta hættunni heim, þar sem núna er þetta bara blaut mold og gætu hjólin skrikast til og einhver dottið. Við viljum stuðla að því að börn noti hjól sem faramáta í skólann, en að sama skapi að leiðin sé trygg

Points

Full þörf á þessu og handrið við tröppur

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og er ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Háaleitis og Bústaða á fimmtudaginn næstkomandi þann 6. maí milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á Facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/202843634962715. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information