Tennisvöllur á Mikla/Klambratún

Tennisvöllur á Mikla/Klambratún

Hvað viltu láta gera? Búa til tennisvöll við hlið klifurturnsins á malarvellinum austan megin á túninu. Hvers vegna viltu láta gera það? Það eru nær engir almennings tennisvellir í Reykjavík. Þetta væri líka góð viðbót við lítið nýttan hluta túnsins.

Points

Frábær hreyfing og og viðbót við útivist og íþróttir á Klambratúni. Nýta plássið!

Frábær hreyfing sem hentar öllum aldurshópum og hægt að stunda tennis stóran hluta ársins (meðan færð leyfir). Gott að auka fjölbreytni í aðstöðu til íþróttaiðkana og plássið er til staðar.

Tennis er frábær íþrótt og það er mikil hefð erlendis að hafa tennisvelli í almenningsgörðum. Fjölbreyttni í afþreyingu á Klambratúni laðar að sér fleira og fjölbreyttara fólk, sem er bara gott fyrir þær menningarstofnanir og veitingastaði í nágreninu

Mikill uppgangur í íþróttinni. Leiðinlegt að þurfa að fara í kópavog eða laugardalinn í tennis á útivöllum sem eru ekki í góðu standi. Blak, fótbolti, folf og klifur hefur slegið í gegn á túninu, sé ekki afhverju tennis ætti ekki að gera það líka.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er í uppbyggingu og/eða breytingar fyrirhugaðar á komandi árum og því ekki tímabært að kjósa um að svo stöddu. Það er í skoðun hjá ÍTR að fjölga tennisvöllum í Reykjavík og fer þessi hugmynd áfram sem ábending til ÍTR. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information