Bæta við bílastæðum við fellin

Bæta við bílastæðum við fellin

Hvað viltu láta gera? Bæta við bílastæðum fyrir fólksbíla við: Fannarfell, Gyðufell, Iðufell, Jórufell, Keilufell, Kötlufell, Möðrufell, Norðurfell, Nönnufell, Rjúpufell, Suðurfell, Torfufell, Unufell, Völvufell, Yrsufell, Þórufell. Hvers vegna viltu láta gera það? það er svo leiðinlegt að sjá á kvöldin, þar sem svo mörgum bílum er lagt upp á gras í breiðholtinu, eða eru að nota bílastæði ætluð fyrir vörubíla.

Points

Algjört möst og eyða upp þessum grasblettum sem enginn notar. Gera almennileg og MERKT bílastæði

Vantar klárlega gestastæði!

Það hefur alltaf vantað stæði hérna í Þórufelli og víðsvegar í Breiðholti. Fólk hefur ýtrekað þurft að leggja ólöglega til að fá stæði það er ekki boðlegt.

Sé enginn rök á móti við að auka við stæðum.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Fjölgun bílastæða er stefnumál sem stöðugt er til umfjöllunar og úrvinnslu. Skipulagsferli hugmyndarinnar er of langt fyrir tímaramma verkefnisins sem gerir hana ótæka fyrir verkefnið. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Það er óásættanlegt að fólk þurfi að leita að lausu stæði við næstu blokkir. Eða neyðast til að leggja ólöglega þegar það kemur heim eftir langann vinnudag. Jafnvel klyfjað innkaupapokum.😠

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information