Klifursteinar

Klifursteinar

Hvað viltu láta gera? Setja upp 2 klifursteina í laugardalinn Hvers vegna viltu láta gera það? Laugardalurinn er frábært útivistarsvæði og þetta myndi vera góð viðbót við þá afþreyingu sem er nú þegar í boði. Hentar öllum aldri og er skemmtileg fjölskylduíþrótt.

Points

Sjá hér steinana í almenningsgarðinum í Lundi: https://www.lund.se/uppleva--gora/friluftsliv-natur/utomhusidrott/klattring/

Styð þessa hugmynd. Þetta þarf ekki að vera hættulegt ef gætt er að undirlaginu og steinarnir eru ekki of háir, en þeir mega samt ekki vera alveg smábarna klifursteinar. Þetta verður að vera svolítil áskorun fyrir eldri krakka. Það vantar almennt fleiri tæki til að klifra í fyrir eldri krakka og svona steinar gætu verið frábærir fyrir þau til að fá útrás. Myndin að ofan gæti verið frá Lundi í Svíþjóð en þar voru settir upp flottir steinar í almenningsgarðinum.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur, kosningu í verkefninu Hverfið mitt lauk þann 14.október sl. niðurstöður kosninga má sjá á www.hverfidmitt.is, Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022. Þín hugmynd hlaut ekki kosningu að þessu sinni. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information