Hljómskálagarður

Hljómskálagarður

Hvað viltu láta gera? setja drenrör í blautu hlutana af hljómskálagarðinum því hann er ónothæfur fram eftir vori og þegar rignir vel, að öðru leyti ánæjulegur Hvers vegna viltu láta gera það? lengja tímann sem hægt er að njota útiveru og leiktækjanna með barnabörnunum

Points

ódýr aðgerð sem skylar miklu

Hljómskálagarðurinn er í framræstri mýri. Óvíst er hversu langt er hægt að ganga í að þurrka hann frekar án þess að lækka vatnsyfirborð í tjörnunum. Allt of stór hluti af Vatnsmýrar-Tjarnar svæðisins hefur þegar verið ræstur fram að mínu mati. Frekar ætti að huga að því, að mínu mati, hvernig nýta megi bleytuna til að gera garðinn fjölbreyttari, áhugaverðari og fallegri. Ef til vill má halda fótum þurrum með því að hækka svæði ætluð til gangs, eða með því að fólk gangi á einhverskonar grindum.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er nú þegar í ferli annar staðar innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information