Göngubrú framhjá reiðstíg við Rauðavatn

Göngubrú framhjá reiðstíg við Rauðavatn

Hvað viltu láta gera? Byggja brú út í Rauðavatn til að aðskilja hestastíg og gönguleið Hvers vegna viltu láta gera það? Bæta aðgengi gangandi og hjólandi þar sem hestar og gangandi deila ákveðnum hluta af stíg.

Points

leysa þetta um leið og breikkun verður gerð á suðurlandsvegi

Smá landfylling með fram, þarf ekki að fara í svona dýra framkvæmd

Mjög gott að bæta aðgengi hjólandi og hestamanna með þessari aðgerð.

Þegar haldið verður áfram með suðurlandsvegin fer þessi stígur undir hann og nýjir verða gerðir. Það væri þá ráð fara strax í þá framkvæmd að færa bakkann á Rauðavatni þá horf og gera stígana strax í endanlegri mynd.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er í uppbyggingu og/eða breytingar fyrirhugaðar á komandi árum og því ekki tímabært að kjósa um að svo stöddu. Aðskilnaður á umferð hesta, hjólangi og gangandi á umræddu svæði er í skoðun. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information