Körfuboltavöllur við Hlíðaskóla

Körfuboltavöllur við Hlíðaskóla

Hvað viltu láta gera? Það vantar sárlega nýjan körfuboltavöll við Hlíðaskóla í stað þess gamla og handónýta. Hvers vegna viltu láta gera það? Gamli völlurinn er með holóttu og "þúfóttu" malbiki og körfurnar orðnar mjög lélegar. Krakkarnir eiga skilið að fá almennilegan völl :)

Points

Völlurinn er með ónýtu malbiki og því ekkert notaður, synd að sóa svæði í hana í núverandi mynd.

Virkilega þarft að endurnýja ásamt bættri lýsingu á völlinn/vellina.

Dapurt að næsti skóli við Valsheimilið sem hýsir meistaralið kvenna í körfubolta sé með einn versta körfuboltavöllinn á skólalóð í Reykjavík.

Þetta er frábær hugmynd. Móðir allra íþrótta er vaxandi í Hlíðunum.

Svo er um að gera að nota afgangshita frá íþrótahúsinu í snjóbræðslu. Skólinn gæti þá notað þetta í íþróttakennslu og frístund 3-4bekk sem útisvæði.

Það vantar háar körfur og almennilega velli fyrir háar og lágar!

Það er ekki spurning að það vantar sárlega almennilegan völl. Væri frábært ef börnin í hverfinu gætu spilað á velli sem sómi er að.

Já og setja upp skilti í leiðinni þar sem segir að boltaleikir séu ekki leyfðir eftir kl. 11 á kvöldin

skólalóðir eru enn að mestu leiti beint úr 1960, ekkert nema malbik og járn. Það þarf að gera miklu meira með útiverusvæðin fyrir nemendur. Þetta er skref í rétta átt.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur, Til hamingju hugmyndin þín hlaut kosningu í Hverfið mitt 2021. Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022, niðurstöður kosninga má sjá á www.Hverfidmitt.is. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is/. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Mjög góð hugmynd, það vantar líka að uppfæra fótboltavöllinn! Körfuboltavöllurinn er varla hægt að nota því það vantar oft net á körfurnar!! og þessi er mikið notaður!!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information