Ljós eða Hringtorg við Hallsveg/Víkurveg

Ljós eða Hringtorg við Hallsveg/Víkurveg

Hvað viltu láta gera? Fá umferðarljós eða það sem betra er hringtorg við gatnamótin á Hallsvegi og Víkurvegi. Hvers vegna viltu láta gera það? Það getur verið erfitt, leiðinlegt og jafnvel hættulegt að beygja til vinstri á þessum gatnamótum hvort sem maður er aðð beygja inn eða út Hallsveg.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Um er að ræða þjóðveg í þéttbýli og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum og verður tillögunni komið áfram til Vegagerðarinnar og skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Nú þegar ég hef lent í ágætis árekstri á þessum kafla gæti ég ekki verið meira sammála þessari hugmynd. Ökumenn eiga oft erfitt með að beygja til vinstri á þessum gatnamótum og taka því óþarfa sénsa sem geta leitt, og hafa í mínu tilfelli, leitt til áreksturs.

Árna þarf ekki að setja ein ljósin í viðbót, þau eru tvö nú þegar, hringtorg væri skynsamlegra

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information