Göngubrú eða undirgöng við Ír heimili

Göngubrú eða undirgöng við Ír heimili

Hvað viltu láta gera? Bæta aðgengi barna við að komast að IR æfingasvæði við Skógarsel með göngubrú eða undirgöngum. Þetta er stórhættulegt eins og þetta er núna. Mikil og hröð bílaumferð þegar börnin eru mest á ferðinni Hvers vegna viltu láta gera það? Það þyrfti einhver sérfræðingur að hanna það

Points

Auka öryggi barna á leið til og frá óþróttastarfi. Umferðin á svæðinu er óþarflega hröð og margir virða ekki rétt gangandi vegfarenda þó þeir séu á gangbraut yfir götuna.

Ég labbaði alltaf þangað þegar eg var yngri ekkert hættulegt🤨

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Væri ekki nær að hægja verulega á umferðinni svo hún verði ekki svona hættuleg? Það hefur sýnt sig að göngubrýr og undirgöng auka hraða umferðarinnar sem minnkar öryggi í nágrenninu. Þarna mætti setja þrengingar líkt og við Hólmasel.

Löngu tímabært og einfalt í framkvæmd ef gert er áður en byggt er alveg að svæðinu. Einfaldast að setja undirgöng, brúin þarf að vera há og landslag beggja vegna lágt.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information