Gönguþverun á Njarðargötu

Gönguþverun á Njarðargötu

Hvað viltu láta gera? Setja gangbraut/umferðarljós á Njarðargötuna. Hvers vegna viltu láta gera það? Njarðargatan tekur við allri umferð stærri ökutækja sem fara um Þingholtin og þar er jafnan mikil og hröð umferð. Gatan er sérstaklega hættuleg þar sem bílum er lagt meðfram götunni sem takmarka útsýni og bílar stöðva sjaldan fyrir gangandi vegfarendum. Við Njarðargötu stendur leikskóli auk þess sem að mörg börn þurfa að þvera hana á leið sinni í skóla. Þess vegna er nauðsynlegt að bjóða upp á örugga gönguþverun fyrir unga vegfarendur.

Points

Þetta er brilljant hugmynd sem mætti framkvæma víðar!

Stið þetta heilshugar í ljósinstaðsetningu leikskóla meðal annars

Styð þetta! stórhættulegt umhverfi fyrir leikskólabörn, foreldra og starfsfolk

Mjög rökrètt. Mikið af börnum fylgt og sótt á Laufásborg og Grænuborg og Austurbæjarskóli í næsta nágrenni. Mikil umferð á Njarðargötu allan daginn og nauðsynlegt að sè skylt að stöðva fyrir gangandi vegfarendum einhversstaðar á þessari götu.

Ég styð tillögu ÓES hér til hliðar þar sem lagt er til að Njarðargata verði gerð að vistgötu með 15 km hámarkshraða og þar sem rútur og stærri ökutæki eru bönnuð. Þá þarf engin götuljós og við losnum við þá ljós- og hljóðmengun sem þeim fylgja.

Breyta öllu frá gatnamótum Eiríkgötu/ Mímisvegar, Njarðargötu/ Freyjugötu, allan Skólavörðustíg að Frakkastíg/ Bergþórugötu í vistgötu...15 km hámarkshraði og gangandi í forgangi.

Styð þetta heilshugar hafandi verið með barn á leikskóla við Njarðargötu og séð umferðaþungann og takmarkaða sýn sem gangandi hafa vegna bíla sem lagt er í götunni. Til að toppa þetta mætti einnig breyta Njarðargötu í vistgötu og banna umferð stærri ökutækja.

Að auki þarf að stöðva alla þungabílaumferð um Njarðargötu. Gatan er þröng og mjög hál á veturnar. Ökutæki þurfa án undantekningar að víkja til hliðar þegar rútur koma úr gagnstæðri átt. Sótmengun er sérlega mikil úr rútum og öðrum þungabifreiðum og börn eru sérlega viðkvæm fyrir slíkri mengun. Á Laufásborg leika yfir 100 börn úti á hverjum degi þar sem þau anda að sér sóti, brennisteinssýru, þungamálmum og öðru eitri frá umferðinni. Bjóðum börnunum upp á hreint loft og aukið umferðaröryggi.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information