Innileikvöllur

Innileikvöllur

Hvað viltu láta gera? Bjóða ungum börnum upp á innileikvöll í borginni Hvers vegna viltu láta gera það? Innileikvellir þekkjast víða á Norðurlöndunum og einn slíkur myndi án efa njóta vinsælda hér þar sem veturinn er langur. Ung börn gætu fengið útrás fyrir hreyfiþörf sína sama hvernig viðrar. Innileikvöllur myndi einnig gefa börnum færi á að hreyfa sig án þess að vera takmörkuð af þykkum vetrarfatnaði, klaka og roki. Þetta væri frábær viðbót við leikvallaflóru borgarinnar og mætti til dæmis tengja starfsemi menningarhúsa, bókasafna eða nýrrar fjölskyldumiðstöðvar við Njálsgötu.

Points

Alveg frábær hugmynd! Vantar góð innileikrými fyrir börn. Sérstaklega fyrir þau minnstu sem eiga erfiðara með að hreyfa sig í snjógöllunum.

Þessi hugmynd ætti að vera fremst í forgangsröðinni. Á okkar kalda landi er ótrúlegt að enn skorti svona samverustað fyrir börn og fullorðna!

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins og krefst hugmyndin verulegs rekstrarkostnaðar og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information