Fjarlægja bensínstöðina á Háaleitisbraut

Fjarlægja bensínstöðina á Háaleitisbraut

Hvað viltu láta gera? Loka fyrir umferð, fjarlægja tilgangslausa bensínstöðina og endurskipuleggja þennan reit sem er risastórt útlitslíti fyrir íbúa hverfisins. Hvers vegna viltu láta gera það? Bensínstöðin er barn síns tíma enda er sjoppan lokuð í dag og taka þessar þrjár dælur risastórt pláss í hverfinu. Umferðin þarna í gegn er gegndarlaus og hættuleg og ætti að loka fyrir hið snarasta til að tryggja öryggi og aðgengi gangandi vegfarenda. Það er algjör óþarfi að hafa bensínstöð svona nálægt íbúðabyggð Álftamýrarhverfisins sem er löngu komin til ára sinna.

Points

Fáránleg staðsetning. Allt of margir keyra þarna í gegn. Plássfrekt og útlitsmengun fyrir hverfið.

Breyta bensínstöðinni frekar í hleðslustöð fyrir rafbíla og átöppun fyrir methan og vetni.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information