Lagfæra útileiksvæðið við Keilugranda 1 (Grýtuhúsið) / Boðagranda. Þetta leiksvæði safnar aðallega drasli og hefur ekki verið hirt í langan tíma. Þetta svæði er í gönguleið margra barna í Grandaskóla og er engin lýsing á þessu svæði sem verður mjög dimmt á veturna.
Við viljum auka öryggi barna okkar í umhverfinu með vel upplýsum gönguleiðum til og frá skóla og efla útiveru og leik barnanna.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation