Bílaundirgöng frá Hörpu, Sæbraut- Geirsgata

Bílaundirgöng frá Hörpu, Sæbraut- Geirsgata

Hvað viltu láta gera? Stöðva flöskuhálsamyndunina sem nær frá Hörpu að Kolaportinu með og frelsa fótgangandi frá bílaumferð með því að byggja undirgöng fyrir bíla (hefði að vísu verið snjallt að nýta strax tækifærið þegar að framkvæmdir voru þar í gangi, en ekki um seinan!). Það er þreytandi fyrir gangandi vegfarendur að bíða stöðugt eftir grænu ljósi og sömuleiðis fyrir einstaklinga sem eiga erindi á Granda/Seltjarnarnes að þurfa að fara í gegnum miðbæinn með tilheyrandi töfum. Einnig gæti það bætt flutningstíma sjúkraflutninga ef því er að skipta. Hvers vegna viltu láta gera það? Stöðga óþarfa umferð um miðbæ Reykjavíkur. Fyrirbyggja óþarfa umferðartafir.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information