Ljósastaurar upp í heiðmörk á göngu og hjólastíg

Ljósastaurar  upp í heiðmörk á göngu og hjólastíg

Hvað viltu láta gera? Setja upp ljósastaura á göngu og hjólastíginn frá norðlingaholti upp í heiðmörk Hvers vegna viltu láta gera það? Auka öryggi fyrir gangandi og hjólandi Íbúa

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Það er ekki stefna Reykjavíkurborgar að lýsa upp malarstíga á útivistarsvæðum. Þeir eru hluti af þeim svæðum sem halda skal myrkurgæðum í hámarki og sporna við ljósmengun. Minni ljósmengun er í samræmi við græna vistspor Reykjavíkurborgar og stuðar að orkusparnaði og betra umhverfi fyrir flóru, og fánu Reykjavíkur. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Þessi stígur þjónar ekki samgöngum og þeir sem vilja njóta útiveru á upplýstum stígum hafa um nóg annað að velja.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information