Hiti í gangstéttir. Engin hálka

Hiti í gangstéttir. Engin hálka

Hvað viltu láta gera? Þegar verið er að lagfæra gera nýja göngustíga. Setja hita í allar gangstéttir. Það er hægt að nota frárennsli frá þessum stóru húsum sem eru í hverfinu. Það dygði vel fyrir hitanum Hvers vegna viltu láta gera það? Losna við snjómokstur og sandaustur. Draumaland

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Mæli með því að Reykjavíkurborg láti setja hita í gangbrautir þær sem mest eru notaðar til og frá skólum, leikskólum, verslunum og biðstöðum strætisvagna. Gæti sparað kostnað vegna snjómoksturs, sand- og saltburðar og hálkuvarna. Ending gangbrauta gæti jafnvel orðið lengri ef sama eða svipað hitastig er allt árið um kring undir hellum, malbiki eða steypu.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information