Ný heilsugæsla/ miðstöð fyrir hverfið

Ný heilsugæsla/ miðstöð fyrir hverfið

Hvað viltu láta gera? Það er raki og mygla í núverandi húsnæði heilsugæslunnar í Drápuhlið og húsnæðið ekki hentugt sem heilsugæsla. Léleg vinnuaðstaða fyrir starfsfólkið og biðstofa gesta á ganginum. Hugmyndin er að byggja nýja heilsugæslu í nálægð við Val þar sem líka væri sjúkraþjálfun og fleira heilsutengt. Jafnvel sundlaug. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er stöðugt verið að henda peningum í að laga Drápuhlíðina þegar húsnæðið er óhentugt. Íbúar í Hlíðunum eiga skilið glæsilega heilsugæslu og heilsusamlega án myglu!

Points

Frábær hugmynd, en ég er ekki alveg viss um staðsetningu við Valsheimilið, þar sem það er alveg í jaðri hverfisins, það hlýtur að vera einhver betri staðsetning.

Heilsugæslustöðin Hlíðar á skilið húsnæði sem endurspeglar þá frábæru, hlýju og persónulegu þjónustu sem starfsfólkið þar veitir. Það er óboðlegt að starfsfólkið þar þurfi að vinna í húsnæði sem er þakið í raka og myglu. Er 110% með þessari hugmynd og staðsetningin hjá Val er mjög heppileg að ég tel 😊

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information