Hundagerði í Seljahverfi

Hundagerði í Seljahverfi

Hvað viltu láta gera? Búa til stórt hundagerði í Seljahverfi. Rúmgott með nokkrum hólfum og jafnvel þrautum fyrir hunda til skemmtunar og þjálfunar. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er skortur á svæðum til að hleypa hundum lausum innan borgarmarka. Vantar almennilegt gerði sem er hólfað niður. Nægilega stórt til að leyfa hundum að hlaupa lausum, jafnvel eftir tegundum/stærð. Virðist sem hundum sé að fjölga í nágrenninu og fólk er mikið í göngutúrum með þá í Breiðholtinu sem er jákvætt. Til að þjálfa hunda þurfa aðstæður þó að vera góðar og fyrir hendi. Innkall frá fjarska og boltaleikir eru t.d. þættir í þjálfun, sem erfitt/illa séð er að æfa innan hverfis (það þarf að gera sér ferð út úr bænum). Með því að hafa hundagerði sem væri t.d. hólfað niður, væri hægt að kynnast öðrum hundaeigendum og bera saman bækur varðandi þjálfun, o.fl. Staðsetning nálægt skóla, heimili eldri borgara og íbúahverfi væri kjörinn staður til umhverfisþjálfunar. Rjúpnahæð, svæði sem hefur verið nokkuð mikið notað fyrir leiksvæði fyrir hunda er líklegast að hverfa undir aðra starfsemi/vegaframkvæmdir svo hundagerði/svæði væri vel þegið innan Seljahverfis.

Points

Þakka pent. Bý í Hryggjarseli og langar ekki að hafa hundagerði við húsið hjá mér

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Breiðholts á fimmtudaginn næstkomandi þann 15. apríl milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/184485366578370/. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Vegna byggingar á Arnarnesveg sem mun liggja þvert yfir stæðsta hundasvæði borgarinnar og er mjög mikið notað af hundaeigndum mun vanta stórt lokað hundasvæði og ekki væri verra ef það væri upplýst. Frábær hugmynd að hafa það hólfaskipt og þetta væri frábær staðsetning þar sem það er ekkert nema illa farnar brýr á þessu svæði.

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information