Klára malbikun á göngustíg neðan við Hamrahverfið

Klára malbikun á göngustíg neðan við Hamrahverfið

Hvað viltu láta gera? Klára malbikun á göngustíg neðan við Hamrahverfið og framhjá Gufunesinu. Hvers vegna viltu láta gera það? Byrjað var á framkvæmdum fyrir 2-3 árum og malbikaður smá kafli fyrir neðan Harmahverfið en það svo aldrei klárað. Þetta er falin útivistaperla og yndislegt að ganga þarna í góðu veðri en göngustígurinn verður að drullusvaði og illfær í leysingum og blautu veðri. Hvernig væri nú að klára dæmið!

Points

Vil endilega bara fá betri malarstíg, miklu betra að ganga á svoleiðis heldur en á malbiki. Einnig ekki eins hált á veturna.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem þetta verkefni hefur nú þegar verið framkvæmt eða er á framkvæmdaáætlun. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Finnst rétt að benda á að þetta er vinsæll fjallahjólakafli vegna þess að hann er ekki malbikaður. Er þó ekki á móti þessari tillögu.

Ástæðulaust er að malbika alla stíga í hverfinu. Þetta er rótgróin gönguleið, mjög róleg og góð. Gott er að ganga á mölinni sem er betra undirlag í göngu en malbik. Hálka á vetrum er minni á malarstíg en ef malbikiða er. Ofaníburður í mölina væri fínn af og til. Aftur á móti mætti gjarnan setja bekki og jafnvel ljós. Mjög gjarnan má taka þetta malbik sem sett var en bæta aðgengi niður á stíginn frá malbikaða stígnum kringum Hamrahverfið.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information