Vantar undirgöng á Strandvegi/Borgarvegi við stytturnar

Vantar undirgöng á Strandvegi/Borgarvegi við stytturnar

Hvað viltu láta gera? Gera undirgöng á Strandvegi/Borgarvegi við stytturnar. Þarna er mikil umferð og oft mjög hröð. Lítið útsýni þegar þú ert að koma upp (norður) Strandveg/Borgarveg fyrir akandi og þeir sem eru gangandi sjá ekki hvort að það séu að koma bílar eða ekki. Einnig þarf að laga göngueyjuna þar sem gengið er yfir Strandveginn í átt að styttunum þar sem hún er alltaf full af vatni, þannig að það þarf að ganga framhjá henni en ekki beint yfir. Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta er öryggisatriði þar sem mikil hætta skapast þegar akandi stöðva fyrir gangandi vegna hættu á aftanákeyrslu.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/ Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Umferð mjög hröð, oft erfitt fyrir gangandi og hjólandi að komast yfir. Einnig þyrfti undirgöngu undir Strandveginn því Borgaskóli hefur nýtt þetta sem hlaupaleið og þá skapast hætta þegar nemendur hlaupa yfir götuna.

Frábær hugmynd, það sárvantar almennilega leið til að komast þarna yfir. Ef undirgöng reynast einhverra hluta vegna ekki möguleg, þá í það minnsta að búa til almennilegar þveranir (helst upphækkaðar) og þverun vestanmegin, þannig að það þurfi ekki að þvera báðar göturnar til þess að fara strandleiðina.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information