Hvað viltu láta gera? Breikka þarf göngu/hjólabrú undir Gullinbrú. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er þröng og skörp beyja í báða enda sem skapar óþarfa óþægindi fyrir hjólandi sem og gangandi á svæðinu.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessa verkefnis er of langur fyrir tímaramma verkefnisins Hverfið mitt og hugmyndin sprengir fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
þarf að merkja þetta betur ekki endilega að breikka enda er það ekki hægt . Þarf að bæta lýsingu og svo þarf nauðsynlega að salta og sanda. .allt of mikið myrkur þarna og svo kemur fólk æðandi á hjólum oft ljóslausum ,, hættulegt . svo mætti koma fyrir bekkjum við göngustíga og ruslafötum þær vantar alls staðar . Skil ekki af hverju Reykjavíkurborg getur ekki lagað þetta strax og snjóbræðslu i stíginn og inn i Bryggjuhverfið þannig að við sem tökum strætó getum komist óbrotin heim til okkar .
Miklu frekar nýja göngu og hjólabrú úr Hamrahverfi yfir í nýtt hverfi Ártúnshöfða
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation