Endurbætur á fótboltavellinum milli B og G landa

Endurbætur á fótboltavellinum milli B og G landa

Hvað viltu láta gera? Endurnýja undirlagið á vellinum, annað hvort með því að leggja gervigras eða þökuleggja hann. Hvers vegna viltu láta gera það? Sparkvöllurinn sem kallaður var Maló í gamla daga, og er fyrir neðan innstu raðhúsalengjuna í Búlandi, er í mjög lélegu ástandi. Djúpar holur hafa myndast fyrir framan öll mörk á vellinum og hann í raun hættulegur þeim börnum sem hann nota, en á sumrin er þessi völlur nánast í stöðugri notkun enda mikið af börnum í hverfinu. Taka þyrfti upp ónýtar torfur, slétta undirlag og tyrfa upp á nýtt svo ekki sé nú talað um að laga ástand markanna sem á vellinum standa.

Points

Lélegt ástand verður til þess að enginn notar þennan völl. Þurfum að fá þetta í lag.

Gervigras ekki spurning

Styð þetta mál heilshugar. Hefur verið nefnt í mörg undangengin ár án þess að fá hljómgrunn hjá borginni. Lágmark að gera völlin hæfan til notkunar með t.d. lagningu gerfigrass en mikið álag er á vellinum hjá unga fólkinu nánast allan ársins hring. Völlurinn er hættulegur í núverandi ástandi sbr. greinagerðina með tillögunni.

Mjög sammála þessari tillögu. Einnig mætti hugsa nýtingu vallarins betur þar sem mörkin fjögur liggja að miðju vallarins og ómögulegt er að spila tvo leiki í einu. T.d væri hægt að færa mörkin svo tveir leikir gæti verið í einu þvert á völlinn eða vera með einn battvöll þvert á annari hliðinni og svo flotta hjólabraut á hinni hliðinni á þessu stóra svæði.

Frábær hugmynd - Þessi völlur hefur verið í notkun í áratugi, sjálfur spilaði ég þarna fyrir 30 árum síðan ásamt mörgum tugum krakka úr hverfinu. Langbest væri að leggja gerfigras á hann til að hámarka nýtingu og takmarka þörfina á viðhaldi til framtíðar. Ekki er þörf á að gera hann að battavelli en undirlagið þarf að vera slétt til að koma í veg fyrir slysahættu og skemmdir á gerfigrasinu. Vellir sem þessir (gerfigras & batta) eru að stuðla að uppbyggingju knattspyrnu á Íslandi !

Mjög góð tillaga og kominn tími á endurbætur þarna. Væri hægt að gera þetta svæði að mjög skemmtilegu íþrótta- og útivistarsvæði innan hverfisins

Þetta er ekki lengur spurning um viðhald, völlurinn er hættulegur í núverandi ástand. Kominn tími til að bregðast við.

Algjōrlega tímabært að laga þennan vōll þannig að hann nýtist fyrir bōrnin í hverfinu.

Ég er fylgjandi því að völlurinn verði lagaður og hef í mörg ár sett tillögu þess efnis hér inn. Hins vegar vil ég ekki fá battavöll þar sem þeim fylgir meiri hávaði.

Klárlega mikil þörf á að laga þennan völl svo ekki endi á því að börn slasi sig þarna. Auk þess mjög svo þarft og gott verkefni fyrir börnin í þessum hluta hverfisins. Gervigras væri fínt Nú er komið að þessu :)

Löngu tímabært!

Styð þessa tillögu. Þetta svæði er illa nýtt og völlurinn gjörsamlega ónýtur. Lögun svæðis hentar illa fyrir grasvöll, þá þarf að viðhalda grasvöllum til að hægt sé að nota þá. Battavöllur myndi slá í gegn hjá ungum knattspyrnuiðkendum sem og foreldrum í hverfinu.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og er ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Háaleitis og Bústaða á fimmtudaginn næstkomandi þann 6. maí milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á Facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/202843634962715. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Algjörlega sammála - þarf að setja gervigrasvöll þarna.

Algjörlega sammála þessari tillögu, en best væri þó ef annað hvort yrði settur þarna battavöllur eða gervigras lagt svo völlurinn haldist góður til lengri tíma.

Kæri hugmyndahöfundur Þín hugmynd var valin á uppstillingarfundi til þess að vera á kjörseðli hverfisins í kosningunni í Hverfið mitt næsta haust. Uppstilling kjörseðila fyrir kosningarnar fór fram á fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Nánari upplýsingar hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og niðurstaðan er að margar frábærar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að þín hugmynd verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hugmyndina fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur, kosningu í verkefninu Hverfið mitt lauk þann 14.október sl. niðurstöður kosninga má sjá á www.hverfidmitt.is, Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022. Þín hugmynd hlaut ekki kosningu að þessu sinni. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information