Undirgöng Snorrabraut

Undirgöng Snorrabraut

Hvað viltu láta gera? Setja undirgöng eða betri göngu aðgengi fyrir börn sem þurfa að fara yfir Snorrabraut fyrir neðan Austurbæjarskóla. Hvers vegna viltu láta gera það? Mörg börn í Austurbæjarskóla búa í norður mýrinni og þurfa að fara yfir Snorrabrautina á hverjum degi, þetta er umferðarmikil gata og hafa því miður orðið þar alvarleg slys. Einnig mundi þetta auðvelda aðgengi fyrir börn sem búa Austurbæjarskóla megin við Snorrabraut að komast yfir í Norður Mýrina og að leika á Klambratúni.

Points

Óþarfa bákn og meðvirkni með hraðakstri - það væri mun meiri ávinningur fyrir alla að lækka umferðarhraða niður í 30 km/klst. og þrengja götuna hressilega. Gangandi eiga betra skilið en að vera leiddir ofan í holur.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information