Gönguljós og gangbraut yfir Holtaveg á móti Frístundaheimilinu Glaðheimar. Mikið af börnum sem þurfa að komast yfir Holtaveginn og nauðsynlegt að hægja á umferð.
Ég styð þessa hugmynd eindregið. Hún kemur frá starfsmanni Glaðheima og birtist hér raunar annað árið í röð. Það búa mörg börn í sundunum sem þurfa að fara yfir Holtaveginn eftir frístund. Það er ekki einu sinni umferðarmerki sem segir að gangandi börn gætu verið á ferð. Hins vegar tel ég algerlega nauðsynlegt að setja þarna umferðarljós þar sem umferðin er mjög mikil í eftirmiðdaginn.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation