Betri stígar í Elliðaárhólma

Betri stígar í Elliðaárhólma

Hvað viltu láta gera? Setja grófa möl í drullusvæðin á skógarstígnum og banna alla hjólaumferð á mjóum á skógarsígum, einnig hunda. Þótt hundar séu í bandi á mjóum stígum þá vaða þeir að gangandi fólki. Það er vont fyrir fólk og fugla! Hvers vegna viltu láta gera það? Til að auðvelda útiveru og aðskilja hunda, hjól og gangandi fólk. Halda skónum hreinum!

Points

Hundar í taumi gera engum mein. Ég nota hundinn minn sem aðstoð og hvata til útiveru, sem er mér nauðsyn þá daga sem ég get gengið, þetta auk þess að setja möl á stíginn hindrar aðgengi fatlaðra, hjólastólar eiga erfitt með að keyra í möl. Malbik eða annað sléttara undirlag myndi bæta aðgengi. Styð heilshugar umbætur a þessu svæði svo framarlega að þær séu ekki aðgengistakmarkandi.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information