Gangstígar í Fossvogsdal.

Gangstígar í Fossvogsdal.

Hvað viltu láta gera? Endurnýja göngustíga í Fossvogsdal og á ég við þá göngustíga sem liggja meðfram húsunum í dalnum. Ekki bara þá sem liggja neðst í dalnum heldur einnig þá sem liggja á milli Bústaðarvegar og dalsbotninn. Hvers vegna viltu láta gera það? Göngustígarnir eru orðnir mjög lélegir og hreinlega mjög hættulegir. Um þessa stíga er stöðugur straumur barna og unglinga á leið til og frá skóla. Þessi hópur hefur farið verulega stækkandi undanfarin ár vegna breytingar á aldurssamsetningu íbúa í dalnum. Auk þess er þetta mjög vinsælt útivistasvæði fyrir borgarbúa vegna veðurblíðu, ekki síst í norðanáttinni.

Points

Nauðsynlegt er að endurnýja marga stíga í hverfinu. Nefni sem dæmi stíg sem liggur í suður frá Brúnalandi 21 að göngustíg í dalnum. Einnig stubbur frá Brautarlandi 21 til suðurs. Þá má vekja athygli á því að stígur norðan við Grundarland, sem liggur vestur/austur að Hörgslandi, og var endurgerður fyrir fáum árum, er víða illa farinn eftir stórar vinnuvélar sem óku þarna um í sumar vegna framkvæmda á svæðinu á vegum Veitna.

Tveir stígar a.m.k. frá Dalalandi og niður í dalinn eru hrein hörmung og hættulegar tröppur á leiðinni.

Mikil þórf á að endurnýja þessa göngustíg. Tek heilshugar undir með öllum sem hafa tjáð sig. 😀

Stígurinn milli Dalalands 12 og 14 er stórhættulegur, nauðsynlegt að endurnýja hann og fleiri stíga í Fossvogi

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information