Loka á umferð bifreiða á göngustígum í neðra Breiðholti

Loka á umferð bifreiða á göngustígum í neðra Breiðholti

Hvað viltu láta gera? Uppsetning á hliðum til að loka á umferð vélknúinna ökutækja annara en þeirra sem heyra undir undanþágur, svo sem neyðarbifreiðar eða þjónustubifreiðar á vegum borgar eða veitna. Hvers vegna viltu láta gera það? Umferð bifreiða á göngustígum í neðra Breiðholti og þá helst í Bökkunum er búið að vera vandamál í allnokkurn tíma. Talsvert hefur borið á því að einkabílum hefur verið ekið, oft ógætilega, um göngustíga. Einnig hefur borið á því að einkabílum hefur verið lagt í skemmri eða lengri tíma á viðkomandi göngustíga eða á grasfleti við þá.

Points

Við höfum séð atvik þar sem bifreið var nærri búin að keyra á ungling á rafskutlu þegar hún beygði fyrir horn á göngustíg í hverfinu. Þetta þarf að loka á áður en kemur til alvarlegra slysa.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Það er ólöglegt fyrir vespur að keyra ekki a gangstíg hvar annars eiga þeir að keyra?

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information