Hvað viltu láta gera? Lagt er til að sett verði upp dorgbryggja fyrir almenning í Bryggjuhverfi í Grafarvogi. Hvers vegna viltu láta gera það? Eitt helsta aðdráttarafl við að búa í nábýli við hafið er að geta kastað út öngli eða tveimur og dorgað í góðum félagsskap. Smábátabryggjan í Bryggjuhverfinu er læst fyrir umferð annarra en þeirra sem leigja bátapláss og því ekki hægt að dorga þar. Hugmyndin gengur út á að auka aðgengi almennings að Bryggjunni og auðga mannlífið við Bryggjuna.
-Auðgar mannlífið í Bryggjuhverfi 🎣 -Gerir fleirum kleyft að njóta Bryggjunnar 👪 -Fegrar umhverfið ⚓
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmynd er ekki framkvæmanleg m.t.t. til öryggissjónarmiða. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation