Bæta aðgengi gangandi vegfarenda í kringum Holtaveg

Bæta aðgengi gangandi vegfarenda í kringum Holtaveg

Hvað viltu láta gera? Lagfæra göngustíga og gera ráð fyrir gangandi vegfarendum á gatnamótum Sæbrautar og Holtavegs. Tryggja samfellu göngustíga og almennt bæta öryggi fólks og barna á þessum reit. Á þessu svæði er félagsmiðstöð/frístund, verslunarmiðstöð og strætóskýli og því mikil umferð gangandi vegfarenda sem þurfa örugga leið til að komast ferða sinna. Hvers vegna viltu láta gera það? Mikið af blindbeygjum og þröngum göngustígum á þessu svæði, allt frá Kleppsvegi 142 að Holtagörðum. Gangandi eða hjólandi vegfarendur hafa ekki öruggan stað til að komast á milli staða þar sem göngustígar eru þröngir, sumir enda út á götu án þess að það sé gangbraut. Það er mjög algengt að sjá fólk labbandi á götunni við Kleppsveg þar sem engin örugg gangstétt er þar.

Points

Ég hef búið hér í tvö ár með tvö lítil börn og hef oft velt fyrir mér hversu mikið skipulagsleysi er á gangstéttum og gatnamótum hér við Sæbrautina. Á öðrum stöðum við Kleppsveg er búið að reisa manir og veggi til að hindra greiðan aðgang út á þessa hraðskreiðu götu og það mætti halda að þetta svæði hafi orðið eftir í gatnaskipulagi borgarinnar.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki á borgarlandi. Hugmynd fer áfram sem ábending til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information