Vatnaveröld í Laugalæk

Vatnaveröld í Laugalæk

Hvað viltu láta gera? Opna kafla í Laugalæk þar sem gamli heiti lækurinn fær að sjá dagsins ljós og fólk getur baðað tærnar á sér. Það mætti taka 1-2 bílastæði í burtu og láta lækinn renna þar. Hvers vegna viltu láta gera það? Gerir fólk hamingjusamt að hafa svona skemmtilegheit í hverfinu. Varðveita einkenni byggðarinnar og upphaf baðmenningar í Reykjavík. Lífgar uppá aðalgötuna í Laugarnesi.

Points

Það væri nær að hleypa aftur heitu vatni á þvottalaugarnar í stað þess að fara að beina börnum í fótþvott við fjölfarna umferðargötu.

þetta er góð hugmynd og gæti komið strekt inn með grilskálanum og úti Danspalli

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Einnig er óljóst hvort að hugmynd sé framkvæmanleg á umræddu svæðu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information