Hvað viltu láta gera? Nýta göngustíginn (löng brekka) milli Mosvegar (Borgarholtsskóla) og Strandvegar (niður við fjöru) og útnefna hann og útfæra sem Þrekstigann í Grafarvogi (sbr. vinsæla Himnastigann í Kópavogi). Þessi 650 metra leið (1300 m. upp og niður) er hin fullkomna brekka fyrir góða átaks göngu, hlaup og eða spretti. Efst og neðst í Þrekstiganum yrðu upplysingaskilti með upplýsingum um lengdir, hæðabreytingu, upplýsingar um æskilega viðmiðunartíma og hitaeiningabrennslu, hvað þykir gott m.v. ákveðinn aldur og slíkt. Lengdarstikur yrðu settar upp á hverjum 50 metrum og einnig yrði upphafs- og lokalínur máluð yfir göngustíginn. Upphafspunktar yrðu beggja vegna með upplýsingaskilti þ.e. efst við Borgarholtsskóla (tengist íþróttastarfi) og hinn væri neðst við göngubrautir Strandvegs (tengist vinsælli gönguleið). Hækkunin er áætluð 100 m.. Nálægt brekkunni eru bæði Spöngin, Borgir, Borgarholtsskóli, Borgaskóli, Víkurskóli og þá er Egilshöllin ekki langt frá uppá nýtingu fjölbreyttra æfingahópa. Gönguleiðin er nú þegar upplýst, utan neðst við göngustíginn við fjöruna. Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta er gott alhliða úti-æfingatæki sem hentar öllum aldurshópum til heilsueflingar. Þrekstigi Grafarvogs yrði sameiningartákn Grafarvogsbúa og tengir marga æfingahópa hverfisins. Notkunarviðmið styðja við markmið og eflingu hvers og eins notanda Þrekstigans. Seinna meir gætu æfingahópar haft reglulegar úti-æfingar í Þrekstiganum og mögulega keppni um hver sé fljótastur að fara ákveðinn fjölda ferða. Þrekstiginn væri góður undirbúningur yfir veturinn fyrir lengri sumarfjallgöngur. "Hittumst í Þrekstiganum"!
Frábær hugmynd, þetta er klárlega "Þrekstigi" þessi leið, frábær fyrir útiæfingar skokkara, íþróttahópa og framhaldsskólanema við Borgó.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Grafarvogs á mánudaginn næstkomandi þann 22. mars milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/232474641944391. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
Það má alls ekki eyðileggja göngustíginn eins og hann er í dag. Hann er í mikilli notkun og þjónar stórum hópi Grafarvogsbúa sem eru ekki endilega til í að þramma þrekstiga upp og niður. Það mætti skoða hvort hægt er að koma stiganum fyrir við hliðina á göngustígnum eða jafnvel annar staðar, t.d. sunnan megin í Grafarvoginum frá vatnsborði og upp á hæðina í Húsahverfinu, þar væri örugglega minna rok.
Kæri hugmyndahöfundur Þín hugmynd var valin á uppstillingarfundi til þess að vera á kjörseðli hverfisins í kosningunni í Hverfið mitt næsta haust. Uppstilling kjörseðila fyrir kosningarnar fór fram á fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Nánari upplýsingar hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og niðurstaðan er að margar frábærar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að þín hugmynd verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hugmyndina fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
Athugið að hugmyndin miðar ekki að því að taka stíginn í burtu og setja tröppur í staðinn, stígurinn myndi halda sér í núverandi mynd (engar tröppur) :)
Kæri hugmyndahöfundur, kosningu í verkefninu Hverfið mitt lauk þann 14.október sl. niðurstöður kosninga má sjá á www.hverfidmitt.is, Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022. Þín hugmynd hlaut ekki kosningu að þessu sinni. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation