Krakkagosbrunnur á Hlemmtorgi

Krakkagosbrunnur á Hlemmtorgi

Hvað viltu láta gera? Gosbrunnur á nýja Hlemmtorgi þar sem krakkar geta leikið sér í gosbrunninum á góðviðrisdögum. Hvers vegna viltu láta gera það? Krakkar hafa mjög gaman af því að ærslast í gosbrunnum.Leikgosbrunnur á Klambratúni eykur fjölbreytileikan á svæðinu, dregur að fólk og skapar líf og stemmingu í almenningsrými sem að er það sem gerir borgarlíf svo skemmtilegt. Það eru mörg dæmi um slíka gosbrunna í stórborgum en það getur verið mjög upplífgandi á stöðum þar sem er mikil steinsteypa að koma inn með nátttúruleg element eins og vatn og gróður. Í London er kveikt á leikgosbrunnunum hluta úr árinu og á vissum tímum dagsins og virka torgin vel bæði þegar kveikt er á gosbrunnunum og slökkt er á þeim. Hér væri hægt að hafa kveikt á gosbrunnunum á sumrin þegar veður er gott. Það rennur mikið hitaveitu affallsvatn til sjávar sem hægt væri að nota í svona verkefni. Það verður frábært ef það tekst að gera nýtt líflegt Hlemmtorg sem fyllist af fólki á góðviðrisdögum og færa þannig miðborgina nær austurhlutanum. Dæmi um nokkra staði í London þar sem eru gosbrunnar sem krakkar leika sér í er á Granary Square og Edmond J Safra Fountain Court, Royal Academy of Arts og Russell Square.

Points

Kynntist fyrir nokkrum árum í Frakklandi og var til fyrirmyndar.

Má ég frekar mæla með að svona verði gert á Lækjartorgi?

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er í uppbyggingu og/eða breytingar fyrirhugaðar á komandi árum og því ekki tímabært að kjósa um að svo stöddu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information