Nýtt grænt svæði og torg við Grímsbæ

Nýtt grænt svæði og torg við Grímsbæ

Hvað viltu láta gera? Það eru miklir möguleikar á að gera svæðið fyrir neðan Grímsbæ frábæran stað þar sem íbúar geta komið saman. Svæðið leynir á sér og gæti orðið afar skemmtilegur garður með torgi og grænum svæðum. Í dag eru þarna rólur og eldgamlar tóftir og oft mikið rusl á stígunum og grasinu, enda engar ruslatunnur sjáanlegar í næsta nágrenni. Hugmyndin er sú að þarna komi ákveðið miðsvæði, sem vantar í hverfið og viðbót við þá þjónustu sem er nú þegar þarna í kring. Rúsínan í pylsuendanum verða síðan stór veggjalistaverk sem einkenna svæðið og munu verða mikið aðdráttarafl. Svæðið verður rammað inn með stórum listaverkum sem verða máluð á gafla húsanna sem snúa að svæðinu, en þeir eru hvítir og fullkomnir fyrir risalistaverk og gætu þau tengst á einhvern hátt og „tekið utan um“ þá sem koma inn á svæðið. Svæðið sjálft þyrfti að endurhanna með grasflötum og gróðri ásamt bekkjum, nægilegt pláss til að setjast niður, fá sér nesti eða kaupa veitingar. Væri gaman ef flatirnar verða einskonar tröppur vísa niður að sama stað, þar sem hægt væri að hafa lítið svið. Það væri gaman að gera þetta að miðpunkti hverfisins þar sem íbúar geta komið saman án þess að þurfa að keyra einhverjar lengri vegalengdir. Einnig væri flott að setja upp skemmtileg leiktæki fyrir krakkana og hafa útikaffihús þarna á sumrin. Það þarf að bæta aðgengi inn á svæðið, með sérstakri áherslu á göngu- og hjólastíga, en glæsilegur stígur er nú kominn við Bústaðarveg, steinsnar frá Grímsbæ, einnig stoppar strætó í næsta nágrenni. þá mætti setja sérstök hjólastæði þar sem hægt væri að pumpa í dekkin og herða lausa bolta. Þetta nýja svæði myndi ýta undir þjónustu sem er nú þegar í Grímsbæ en einnig væri möguleiki á að fá matarvagna í heimsókn þar sem hægt væri að koma saman og fá sér að borða. Þá væri hægt að nýta svæðið allan ársins hring og hægt að setja upp hitara og útiarin. Þá er ekki úr vegi að þarna verði settur upp lítill jólamarkaður í desember þar sem hægt verði að kaupa heitt súkkulaði, jólaglögg og ýmsar kræsingar. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að bæta hverfið og líðan íbúa þess. Gera hverfið skemmtilegra og hafa falleg listaverk til að horfa á. Búa til miðsvæði þar sem allir geta komið saman og rætt málin, hist eða kynnst nágrönnum sínum.

Points

Ég labbaði þarna um daginn og hugsaði nákvæmlega það sama. Þarna er stutt í mat, fallegt og stórt tún með mikið af möguleikum. Það er vissulega ekki hægt að búast við því að borgin setji upp kaffihús á sumrin, en kannski ef að svæðið yrði fegrað og gert aðlandi fyrir gesti og gangandi myndu nógu margir koma til að lokka að veitingavagn. Annars er í húsinu bakarí sem selur uppáhellt kaffi :)

Geggjuð hugmynd!

Mjög þörf ábending, þetta svæði er orðið mjög lúið en gæti verið frábært.

Kæri hugmyndahöfundur, Til hamingju hugmyndin þín hlaut kosningu í Hverfið mitt 2021. Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022, niðurstöður kosninga má sjá á www.Hverfidmitt.is. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is/. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information