Skíðabrekka

Skíðabrekka

Hvað viltu láta gera? Skíðabrekku með diskalyftu á hentugum stað í hlíðum Úlfarsfells, aðeins stærri en hinar skíðabrekkur borgarinnar. Án þess að raska vinsælum gönguleiðum svæðisins. Hvers vegna viltu láta gera það? Eykur útivistarmöguleika svæðisins á veturna, gerir börnum kleift að æfa sig á skíðum/bretti án mikillar fyrirhafnar. Frábær fjölskylduíþrótt. Á sumrin væri e.t.v. hægt að nýta brekkuna fyrir fjallahjól eins og gert er í Skálafelli og víðar.

Points

Fjölsótt útivistarsvæði og aðgengilegt fyrir marga. Gætu nýst alls konar fjölskyldum sem gætu skellt sér á skíði á meðan aðrir myndu kjósa gönguleiðirnar.

Mikið af börnum í hverfinu og mikið um fóln sem nýtur þess að stunda útivist á græna svæðinu í kringum hverfið

Frábært sport

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins og hugmyndin felur í sér rekstrarkostnað sem gerir hana ótæka fyrir verkefnið Hverfið mitt. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Stutt að fara á skíði, og eykur á fjölbreytileika hverfisins til hreyfingar og útiveru. Kveikir áhuga á skíðaíþróttinni. Mjög góð hugmynd.

Væri frábært að fá skíðalyftu í hverfið,

Frábært fjölskyldusport

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information