Hvað viltu láta gera? Samþykki íbúa við Sogaveg, þ.e. Akurgerði 2-8, var sent borgarskrifstofum fyrir u.þ.b. ári síðan en erindinu var ekki svarað. Við vildum að landslagshönnuðir borgarinnar hönnuðu hljóðmön neðan við hús okkar. Hugsa mætti mön sem næði frá norð-vestur horni Fiskikonungsins og sveigðist eitthvað upp með Grensásvegi. Framkvæmdin mundi ekki skyggja á aðra umferð ökumanna. Benda má á miklar sambærilegar framkvæmdir við Rauðagerði þótt manir við Grensásveginn væru líklega miklu léttari. Hvers vegna viltu láta gera það? Minnka umferðarhávaða og mengun
Þetta er snilldar tillaga sem myndi minnka hljóðmengun verulega fyrir íbúa í Akurgerði og hluta af Sogavegi.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Einnig er um að ræða veghelgunarsvæði þjóðvega og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum og verður tillögunni komið áfram til Vegagerðarinnar og skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation