Ærslabelgur í Efra-Breiðholt

Ærslabelgur í Efra-Breiðholt

Hvað viltu láta gera? Gaman væri að fá ærslabelg í efra Breiðholtið, svæðið við sundlaugina t.d. er miðsvæðis og alveg kjörið að hafa hoppudýnu, hægt að velja um nokkur svæði þar í kring. Hvers vegna viltu láta gera það? Væri frábært fyrir börnin í hverfinu að fá að njóta yfir sumartímann.

Points

Efla útiveru barna. Hentugt svæði væri td við tjörnina í Seljahverfi, eða við sparkvöll hinum megin við Krónuna 😁

Frábær hugmynd - en nauðsynlegt að hafa eftirlitsmyndavélar líka svo unglingar á vespum sem leika sér að því að keyra yfir belginn og skemma hann komist ekki upp með slík athæfi.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Börn eiga auðveldara með að kynnast og mynda vinskap í kringum sameiginleg áhugamál eða leiki og staði sem þessa...... algjörlega frábær hugmynd.

Æðisleg hugmynd. Styð heilshugar!

Breiðholtið þarfnast skemmtilegra leiksvæða fyrir börn á öllum aldri, Ærslabelgur væri kjörin viðbót.

Vantar sárlega ærslabelg í Breiðholtið

Geggjað!

Börnin hefðu mjög gaman af þessu (og fullorðnir líka)

Frábær hugmynd

Ja takk þetta væri æði

Ærslabelgur er vinsæll hjá börnum og það væri frábært að hafa þannig leiktæki miðsvæðis í hverfinu!

Væri frábær viðbót og nægt rými í kringum laugina.

Eru koddar innifaldir?

Frabær hugmynd og mundi gera tomu svæðin meira aðlaðandi

ég og mín verðum daglegir gestir :-)😀

Frábær hugmynd

Kæri hugmyndahöfundur, Til hamingju hugmyndin þín hlaut kosningu í Hverfið mitt 2021. Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022, niðurstöður kosninga má sjá á www.Hverfidmitt.is. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is/. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information