Loka Langagerði fyrir ca. miðju.

Loka Langagerði fyrir ca. miðju.

Hvað viltu láta gera? Vill loka Langagerðinu fyrir miðju. Þannig að það verði ekki hægt að keyra í gegn. Einungis hægt að keyra inn frá Réttarholtsvegi að vestan og svo Tunguvegi að austan. Hvers vegna viltu láta gera það? Ég sem íbúi við Langagerði finnst umferðarhraðinn vera mikill. Þetta er orðin þröng gata þar sem lagt er bílum beggja vegna. Því ætti þetta vera botnlangi.

Points

lokun á Langagerði myndi hafa áhrif á umferð og íbúa við aðrar götur hverfisins

Mjög góð hugmynd. Um gangstíga við götuna fara mörg börn og unglingar á leið sinni til skóla. Í götunni er einnig leikskóli og þar væri gott að minnka hraða og fjölda bíla á ferðinni.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information