Gangbrautir í Ármúla og Síðumúla

Gangbrautir í Ármúla og Síðumúla

Hvað viltu láta gera? Ég legg til að bæta við gangbrautum í Ármúla og Síðumúla og bæta þær sem eru nú þegar. Hvers vegna viltu láta gera það? Ármúlinn og Síðumúlinn eru að verða sívinsælli verslunargötur. Það er hins vegar erfitt að vera gangandi vegfarandi í múlunum, þar sem göngubrautir eru fáar og það er erfitt að þvera þær fyrir umferð. Þá eru núverandi gangbrautir illa merktar og illa hirtar og það mætti t.d. endurmála þær til að bæta öryggi fyrir gangandi vegfarendur.

Points

Styð þetta, og vil bæta við að það getur verið snúið að ganga með barnavagna þarna, vantar oft tengingar milli göngustíga/gangbrautar. :)

Það þarf að endurhugsa Ármúlann og Síðumúlann með tilliti til gangandi umferðar. Hverfið er að breytast og göturnar þurfa að vera mun aðgengilegri fyrir gangandi umferð langs og kross.

Sammála - aukin gangandi umferð sem kallar á þetta og líka betri tengingu frá gangbrautum að göngustígum. Mjög erfitt að vera gangandi þarna núna og sérstaklega með börn/barnavagna.

Sammála, það getur verið ansi snúið að ganga um Síðumúlan og Ármúlan og tengingin við stíginn á milli Háaleitisbrautar og Síðumúla er ekki nógu góð.

Ármúli og Síðumúli hafa á síðastliðnum árum þróast í það að vera mjög fjölbreyttar og góðar verslunargötur. Þær eru hins vegar byggðar með aðgengi bílaumferðar í huga en ekki gangandi og hjólandi umferðar. Þar eru ekki samfelldar gangstéttir né hjólabrautir heldur þurfa vegfarendur að klöngrast milli bílastæða. Með því að skipuleggja umferð annarra en ökutækja betur á svæðinu og bæta við gangvegum og -brautum mætti gera þetta svæði mun vistvænna og enn skemmtilegra.

Frábær hugmynd, skipulagningin á þessum götum er löngu orðin úrelt og varla gert ráð fyrir gangandi umferð þegar þetta er hannað. Þessar götur eru þokkalega hættulegar í dag fyrir t.d. hjólandi umferð og tímabært að þær stígi inn í 21.öldina.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information