Gangbraut í Hvassaleiti

Gangbraut í Hvassaleiti

Hvað viltu láta gera? Setja gangbraut norðarlega í Hvassaleiti, t.d. hjá hraðahindruninni hjá Hvassaleiti 6-10. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er aðeins ein gangbraut í Hvassaleiti (sunnarlega) og mikilvægt að setja aðra norðarlega, t.d. hjá hraðahindruninni hjá Hvassaleiti 6-10, svo það þurfi ekki að ganga langa leið til að komast yfir. Myndi hjálpa börnum sem eru að fara í Hvassaleitisskóla.

Points

Nauðsynlegt að hægja á umferð á þessum kafla Hvassaleitis, fyrir alla gangandi umferð en sérstaklega börn.

Þetta er nauðsynlegt fyrir börn í Hvassaleitisskóla.

Myndi hafa hana til að kljúfa þennan beina kafla nær blokkinni 12-16. Tifandi tímasprengja stórslyss.

Mikilvægt til að börn í Hvassaleitisskóla geti gengið örugga leið í skólann.

Mikill umferðarhraði. Myndi vilja sjá samskonar útfærslu og er í Breiðagerði. Þrengingar til að draga úr hraða.

Bráðnauðsynlegt áður en verður stórslys á þessum kafla Hvassaleitis þó það megi eingöngu aka á 30.km. Einhverjir bílstjórar nota þenna kafla sem kvartmílubraut ýmist frá beygju við Hvassaleiti 39 og upp að gatnamótum eða frá gatnamótum. Algjör klikkun sem endar bara á einn veg.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information