Hraðahindranir / Gangbrautir á Gunnarsbraut

Hraðahindranir / Gangbrautir á Gunnarsbraut

Hvað viltu láta gera? Ég myndi vilja láta reisa hraðahindranir á Gunnarsbraut. Hámarkshraði er 30 km/klst en þar það er ekki ein hraðahindrun frá Flókagötu að Njálsgötu þá eru margir sem þjóta þennan kafla á 50 km/klst+ Hvers vegna viltu láta gera það? Til að koma í veg fyrir slys og sjá til þess að ökumenn virði hámarkshraða.

Points

Hraðahindranir eru barn sins tíma, nú er áherslan á hagkvæmni og hraðahindranir er alls ekki hagkvæmar heltur þveröfugt. Þær slíta ökutækjum og eyða orku (pensíni, peningum) , aukin mengun er ekki það sm við þurfum heldur.

Ég bý við Gunnarsbrautina og sá síðast í morgun bíl keyra á miklum hraða niður brautina þegar ég var að fylgja 6 ára dóttur minni í skólann. Bílar, vespur og rafhjól keyra ítrekað of hratt í götunni sem veldur mikilli hættu fyrir gangandi vegfarendur og sérstaklega börn sem eru ný í umferðinni. Það er ekki hægt að leggja ábyrgðina á börn sem búa í hverfinu, hún verður að liggja hjá ökumönnum og eins og þetta er búið að vera þá eru þeir sumir ekki að axla ábyrgð. Það mætti bæta merkingar líka.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information