Bryggjuhverfi / Útivistarsvæði

Bryggjuhverfi / Útivistarsvæði

Hvað viltu láta gera? Setja upp leiksvæði á tanganum við Tangabryggju. Vantar leiktæki og bekki á svæðið svo hægt væri að gera tangann betur aðgengilegan fyrir íbúa til útiveru. Setja upp skjólvegg við bekki. Fjarlægja bátaramp sem er við sjóinn til að fækka bátakerrum sem skildar eru eftir. Og falla frá fyrirhuguðum bensínafgreiðslu skúr sem er í deiliskipulagi. Hvers vegna viltu láta gera það? Svo svæðið í bryggjuhverfinu nýtist betur til útiveru. Myndi henta öllum aldurshópum.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er í uppbyggingu og/eða breytingar fyrirhugaðar á komandi árum og því ekki tímabært að kjósa um að svo stöddu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Mæli með þvi að það verði settir bekkir svo fólk geti sest niður , mætti lika koma með skýli fyrir þá sem hafa gaman af fuglaskoðun. . Gott að geta farið inn og kíkt á fuglana í skjóli. Mætti lika setja smá upplýsingaskilti . Rampinn á alls ekki að fjarlægja þetta er nú einu sinni Bryggjuhverfi og á að vera það með bátum og skútum og aðstöðu fyrir þá sem koma siglandi.

Þessi rampur er nauðsynlegur

Rampurinn er nauðsynlegur til þess að sjósetja báta. Þetta er jú Bryggjuhverfi.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information