Hraða myndavélar í nálægð Langholtsskóla

Hraða myndavélar í nálægð Langholtsskóla

Hvað viltu láta gera? Setja upp hraðamyndavélar milli Langholtsveg /Holtavegar og Langholtsveg/Álfheima. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er oft ekið mjög hratt á milli þessara gagnamóta við skólann. Þarna er mikið af börnum jafnt að degi sem kvöldi og ólíðandi að það sé verið að gefa í á þessum kafla. Ég er búin að senda inn fyrirspurn til lögreglunnar en hún bendir mig á að hafa samband hér.

Points

Þetta er knýjandi vegna mikillar umferða á þessum spotta þar sem börn eru á leið í skóla, bæði við Holtaveg og Álfheima.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information